Framleiðsluárið · Vigtun · Leiðbeining 15
Svona vigtar þú
Þú skannar gripinn, slærð inn þungann, vistar og heldur beint áfram með næsta. Í lokin sendir þú allt í Fjárvís í einu: skanna, skrá, senda. Myndirnar eru úr appinu sjálfu.
Fyrir vigtunardaginn
Áður en þú byrjar
Skanna
- Á Heim, ýttu á Vigtun. Talan á spjaldinu er fjöldi vigtana sem bíða sendingar.
- Listinn Þungavigtun opnast. Ýttu á „Skrá“ til að byrja.
- Skannaðu gripinn. Hann er valinn og appið stingur upp á réttri þungategund eftir því hvort þetta er lamb eða fullorðinn gripur og hvaða dagur er.


Gott að skilja
Þegar þú velur gripinn
Um leið og gripurinn er skannaður birtast upplýsingar um hann:
- Nafn, valnúmer, kyn og eyrnamerki.
- Arfgerð: lituðu merkin, í sömu litum og með sömu heitum og í Fjárvís. Ýttu á merki til að sjá skýringu.
- Atburður: ef lamb er merkt líflamb eða til förgunar næsta haust sérðu það strax. Gott í haustvigtun.
- Upplýsingar um gripinn: faðir, móðir, fóstra, síðasta vigtun, gerð, fita, frjósemi og mjólkurgeta.
- Síðast skráð: síðasta vigtun, svo þú sérð strax hvort talan sé trúverðug.
- Fyrri athugasemdir.
Gott að skilja
Þungategund og lásinn á dagsetningunni
Þungategundin efst er valin sjálfkrafa. Þú getur breytt henni, t.d. ef þú skráir lífþunga lamba í september. Lambategundirnar er bara hægt að skrá á lömb.
Dagsetningin er dagurinn í dag. Við hana er lás. Opinn lás (sjálfgefið): dagsetningin fer aftur á daginn í dag eftir hverja vistun. Lokaður lás: hún heldur sér. Læstu henni þegar þú skráir vigtun frá öðrum degi, t.d. af blaði.
Skrá
- Sláðu inn þungann. Undir tölunni stendur „Gilt bil: …“ fyrir tegundina. Tala utan bilsins vistast ekki.
- Skrifaðu athugasemd ef þarf.
- Ýttu á „Vista þunga“.
- Skjárinn fer ekki til baka. Græn ræma segir „Síðast vistað: …“ og teljarinn efst hækkar. Skannaðu næsta grip strax.


Á haustin
Fallþungamat: á lambið að fara núna?
Þegar þú skráir lífþunga lamba birtist áætlaður fallþungi og hve líklegt er að fallið lendi undir 13,5 kg, mörkunum þar sem sláturhúsin greiða ekkert álag.
- Óhætt að senda.
- Á mörkunum: íhugaðu að bíða.
- Fær líklega ekkert álag.
Matið er „miðað við þitt bú“ þegar nóg er til af þínum eigin lömbum, annars landsmeðaltal. Það er upplýsing, ekki skilyrði. Þú vistar eins og venjulega.

Gott að skilja
Athugasemdir
Reiturinn „Bættu við athugasemdum...“ er valfrjáls og hreinsast eftir hverja vistun. Athugasemdirnar eru geymdar í LAMB og fylgja gripnum. Þær birtast sem Fyrri athugasemdir næst þegar hann er valinn, t.d. í fangi eða burði.
Senda
Vigtanirnar fara ekki sjálfar í Fjárvís. Þegar þú ert búin/n sendir þú allt í einu.
- Komdu símanum á net og farðu til baka í listann Þungavigtun.
- Neðst stendur hve margar vigtanir bíða sendingar til Fjárvís. Ýttu á „Fjárvís“.
- Fyrsta skiptið gætirðu þurft að skrá þig inn í Fjárvís.
- Svo kemur yfirlitið „Sending til Fjárvís“: hve margar fóru á skrá, hve margar voru þegar þar og hverju var hafnað, með ástæðu.
Þú getur líka sent af vefnum: Vigtunarlisti → Ósent → „Senda á Fjárvís“.

Mörg hundruð í einu
Lesa inn skrá úr lesara eða vog
Vigtarðu með vog eða lesara sem vistar lotuna, t.d. Tru-Test, Gallagher eða Allflex? Þá skráir þú allar vigtanirnar í einu.
- Sæktu skrána úr lesaranum í símann (CSV, TXT eða XLSX).
- Í listanum Þungavigtun, ýttu á táknið „Flytja inn lesaraskrá“ efst og veldu skrána.
- Appið parar merkin við gripi og sýnir hve mörg fundust og hver ekki.
- Veldu tegund vigtunar (sjálfvirkt er oftast rétt) og skráningardag.
- Ýttu á „Skrá … þunga“. Svo sendir þú í Fjárvís eins og venjulega.
Til að fletta upp
Þungategundir
| Þungategund | Gilt bil | Fyrir |
|---|---|---|
| Fæðingarþungi lamba | 1–10 kg | Lömb |
| Lífþungi lamba | 15–140 kg | Lömb |
| Haustþungi | 15–150 kg | Fullorðnir, 1. sept. – 20. des. |
| Miðsvetrarvigtun | 15–150 kg | Fullorðnir, 21. des. – 28. feb. |
| Vorvigtun | 15–150 kg | Fullorðnir, mars – ágúst |
Ef eitthvað stoppar þig
Skilaboð sem geta birst
Talan er utan gilda bilsins. Athugaðu töluna og þungategundina.
Þú valdir lambategund á fullorðinn grip. Veldu aðra tegund, eða lamb.
RML opnar árið. Vigtanirnar bíða og fara sjálfkrafa þegar það opnast. Ekkert að gera.
Síminn hefur ekki klárað að senda upp í LAMB. Athugaðu netið og reyndu aftur.
LAMB tók ekki við vigtuninni, t.d. af því að gripurinn var þegar vigtaður þann dag í öðrum síma. Línan segir af hverju. Sjá leiðbeiningu 9.
Sambandsleysi, ekki höfnun. Reyndu aftur síðar.