LAMB4

Að byrja · Leiðbeining 1

Svona stofnar þú aðgang og prófar LAMB frítt í 14 daga

Þú stofnar aðganginn á vefnum, tengir búið við Fjárvís og LAMB sækir féð þitt sjálfkrafa. Þetta tekur um tíu mínútur.

Engar greiðsluupplýsingar þarf. Þú getur sagt upp hvenær sem er á prufutímanum.

Áður en þú byrjar

Hafðu þetta við höndina

Kennitöluna þínaNafn og heimilisfang fyllast þá inn sjálfkrafa.
Netfang sem þú notarÞað verður notandanafnið þitt í LAMB, á vefnum og í appinu.
Innskráninguna í FjárvísNotandanafn og lykilorð. LAMB notar þau til að finna búið þitt og sækja féð.
Ertu þegar með greidda LAMB áskrift? Þá stofnar þú aðganginn á flipanum „Þegar með LAMB áskrift“ í stað prufunnar. Annað er eins.
1

Opnaðu skráningarsíðuna

Farðu á is.lambehf.com/stofna-adgang í tölvu eða síma.

Þú kemst líka þangað af forsíðunni með hnappnum „Prófaðu frítt í 14 daga“, eða með „Nýskrá“ efst á síðunni.

Flipinn „Prufa frítt í 14 daga“ er valinn fyrir þig.

is.lambehf.com/stofna-adgang
Prufa frítt í 14 daga1
Þegar með LAMB áskrift
Prófaðu LAMB frítt í 14 daga
Stofnaðu aðgang og notaðu LAMB Snjallforrit ókeypis í 14 daga. Engar greiðsluupplýsingar þarf.
Skráningarformið, sjá skref 2

2

Fylltu út formið

  1. Sláðu inn kennitöluna, tíu tölustafi. Nafn, heimilisfang, póstnúmer og bær fyllast inn sjálfkrafa. Athugaðu að það sé rétt.
  2. Sláðu inn netfangið þitt.
  3. Veldu lykilorð, að minnsta kosti 6 stafi. Augað hægra megin sýnir það sem þú skrifaðir.
  4. Undir Tengiliðsupplýsingar setur þú inn símanúmer. Hakið við „Senda rafræna reikninga“ er sjálfvalið.
  5. Ýttu á „Byrja ókeypis prufu“.
Skrifaðu hjá þér netfangið og lykilorðið. Þú notar það sama á vefnum og í appinu.
is.lambehf.com/stofna-adgang

Kennitala

01010112341

Fullt nafn

Jón Jónsson

Netfang

jon@dalur.is2

Lykilorð

••••••••3

Tengiliðsupplýsingar

Sími

555-12344

Heimilisfang

Bæjargata 1
Senda rafræna reikninga
Byrja ókeypis prufu5

3

Prufuaðgangurinn er settur upp

Þú þarft ekki að bíða eftir tölvupósti. Síðan sýnir fyrst „Stofna prufuaðgang...“ og svo „Velkomin/n í LAMB!“.

Eftir nokkrar sekúndur ferð þú sjálfkrafa áfram í uppsetninguna. Hún er þrjú stutt skref: Þú, Búið og Gögnin.

is.lambehf.com/trial-stadfest
Velkomin/n í LAMB!
Prufuaðgangurinn þinn er tilbúinn. Þú getur notað LAMB í 14 daga ókeypis.
Þér verður vísað á mínar síður...

4

Staðfestu hver þú ert

  1. Fyrsta skref uppsetningarinnar heitir Þú. Þar sérðu nafnið og kennitöluna sem þú slóst inn.
  2. Er eitthvað rangt? Ýttu á „Breyta upplýsingum“ og lagaðu það.
  3. Ýttu á „Áfram — tengja búið“.

Kennitalan er notuð til að finna áskriftina þína og merkja skráningarnar þínar. Hún fer hvergi annað.

is.lambehf.com/onboarding
1Þú2Búið3Gögnin
Velkomin, Jón
Þrjú stutt skref og féð þitt er komið inn. Fyrst: er þetta rétt hjá okkur?
Fullt nafnJón Jónsson
Kennitala010101-1234
Netfangjon@dalur.is
Breyta upplýsingum2
Áfram — tengja búið3

5

Tengdu búið við Fjárvís

LAMB sækir gripina beint úr Fjárvís, svo þú þarft ekki að slá neitt inn aftur.

  1. Sláðu inn notendanafnið og lykilorðið sem þú notar í Fjárvís.
  2. Ýttu á „Sækja uppgjörin mín“. LAMB sýnir þá uppgjörin sem eru skráð á þig.
  3. Hakaðu við uppgjörin sem þú vilt vinna með í LAMB.
  4. Ýttu á „Tengja … uppgjör“.
Fjárvís-innskráningin fer beint til Fjárvís og LAMB geymir hana ekki. Þú getur bætt við eða tekið út uppgjör síðar.
„Þetta bú er þegar skráð á annan aðgang“? Þá er einhver annar þegar með búið í LAMB, til dæmis maki eða foreldri. Fáðu hjá viðkomandi aðgangskóða úr appinu, sjá leiðbeiningu 3, Bú og aðgangur.

Viltu bíða með þetta? Ýttu á „Sleppa í bili“. Þú getur tengt búið síðar undir Prófíll → Uppgjör.

is.lambehf.com/onboarding
✓Þú2Búið3Gögnin
Tengjum búið þitt

Notendanafn í Fjárvís

jonjons1

Lykilorð í Fjárvís

••••••••
Sækja uppgjörin mín2
Við fundum 2 uppgjör á þínu nafni
3
Dalur
Uppgjör nr. 4127
Dalur 2
Uppgjör nr. 4128
Tengja 1 uppgjör4
Dæmi. Þú sérð þín eigin uppgjör.

6

LAMB sækir féð þitt

Nú sækir LAMB gögnin úr Fjárvís. Þetta tekur oftast innan við mínútu. Þú sérð hvert atriði merkjast jafnóðum: gripi, vigtanir, dóma, kynbótamat, fangskráningar, fósturtalningar, atburði og örmerki.

  1. Bíddu þar til allt er komið. Lokaðu ekki síðunni á meðan.
  2. Ýttu á „Byrja í LAMB“. Þá ertu komin/n inn á búið þitt.

Héðan í frá uppfærast gögnin sjálfkrafa.

Næsta skref: náðu í appið. Vigtanir og burðarskráning fara fram í símanum, úti í húsi og líka án nettengingar. Sjá leiðbeiningu 2, Sækja appið og skrá sig inn.
is.lambehf.com/onboarding
✓Þú✓Búið3Gögnin
Sæki féð þitt
Gripir (412)
Vigtanir (3.180)
Dómar (96)
Kynbótamat (408)
Fangskráningar (288)
Fósturtalningar (284)
Atburðir (1.022)
Örmerki (430)
Gögnin eru komin inn og uppfærast héðan í frá sjálfkrafa.
Byrja í LAMB2
Tölurnar eru dæmi.

Prufutíminn

Hvað gerist eftir 14 daga?

Dagur 1–14

Þú notar LAMB frítt, bæði vefinn og appið.

Dagur 12

Þú færð áminningu í tölvupósti um að prufan sé að klárast.

Dagur 14

Reikningur fyrir árgjaldi LAMB er sendur sjálfkrafa. Þú heldur áfram án þess að gera neitt.

Viltu hætta? Farðu á is.lambehf.com/segja-upp áður en prufan klárast. Þá kemur enginn reikningur. Nánar í leiðbeiningu 4.

Verðið sérðu á is.lambehf.com/verdskra.

Ef eitthvað stoppar þig

Skilaboð sem geta birst

„Það er þegar til LAMB aðgangur á þessari kennitölu“

Hver kennitala á bara einn aðgang. Skráðu þig inn með netfanginu sem þú notaðir áður, eða ýttu á „endurstilltu lykilorðið“ ef þú manst það ekki.

„Prufutímabil er ekki í boði“

Kennitalan hefur verið í LAMB áður. Þú getur samt skráð þig á sama stað. Þá færðu reikning fyrir árgjaldinu og fullan aðgang þegar hann er greiddur.

„Þú ert þegar með greidda LAMB áskrift“

Gott mál. Skiptu yfir á flipann „Þegar með LAMB áskrift“ efst á síðunni og stofnaðu aðganginn þar.

„Þú ert með ógreiddan LAMB reikning“

Greiddu reikninginn fyrst. Svo stofnar þú aðganginn á flipanum „Þegar með LAMB áskrift“.

„Netfang þegar skráð“

Netfangið er í notkun með öðru lykilorði. Farðu á Skrá inn og notaðu „Gleymt lykilorð?“.

„Notendanafn eða lykilorð í Fjárvís er ekki rétt“

Prófaðu að skrá þig inn á Fjárvís sjálft. Gangi það ekki heldur þarftu nýtt lykilorð þar. Þú getur sótt nýtt lykilorð eða breytt því inni á Fjárvís, fjarvis.is.

Þarftu aðstoð?

Tölvupósturinfo@lambehf.com
Sími+354 611-0469
Leiðbeiningarwiki.lambehf.com