Að byrja · Leiðbeining 4
Áskriftin: greiða, segja upp eða eyða aðgangi
LAMB kostar eitt árgjald á ári. Hér sérðu hvar reikningarnir eru, hvernig þú segir upp og hvernig þú biður um að gögnunum þínum sé eytt.
Hvað viltu gera?
Leið A
Árgjaldið og reikningarnir
Áskriftin gildir í eitt ár frá því hún hefst, bæði fyrir vefinn og appið, og endurnýjast svo árlega. Hún er á kennitölu, ekki á hvert bú.
Hann kemur bæði sem krafa í heimabanka og í tölvupósti á netfangið sem þú skráðir. Þegar kemur að endurnýjun færðu nýjan reikning.
Sjá is.lambehf.com/verdskra. Þar stendur líka hvað er innifalið.
Sjáðu stöðuna á vefnum
- Skráðu þig inn á is.lambehf.com og opnaðu Prófíll.
- Efst við nafnið sérðu „Virk áskrift“ og árið, ef árgjaldið er greitt.
- Opnaðu flipann Reikningar. Þar eru allir LAMB-reikningarnir þínir, merktir Greiddur eða Ógreitt.
- Ýttu á niðurhalstáknið til að fá reikninginn sem PDF, t.d. fyrir bókhaldið.
Leið B
Hætta í prufunni
Segðu upp prufuaðganginum
- Farðu á is.lambehf.com/segja-upp, eða opnaðu Prófíll og ýttu á „Segja upp áskrift“.
- Síðan heitir „Segja upp prufuaðgangi“ og sýnir hvenær prufan rennur út. Athugaðu að upplýsingarnar séu þínar.
- Ýttu á „Segja upp prufuaðgangi“.
Þá stendur „Prufa sögð upp. Enginn reikningur verður stofnaður.“
Leið C
Segja upp áskrift
Sendu uppsagnarbeiðni
- Farðu á is.lambehf.com/segja-upp, eða opnaðu Prófíll og ýttu á „Segja upp áskrift“.
- Viltu segja okkur af hverju? Skrifaðu það í „Ástæða uppsagnar“. Það er valfrjálst en hjálpar okkur mikið.
- Ýttu á „Senda uppsagnarbeiðni“.
Þú færð staðfestingu í tölvupósti. Við höfum svo samband á sama netfang til að ljúka uppsögninni.
Ástæða uppsagnar (valfrjálst)
Leið D
Eyða aðgangi og gögnum
Biddu um eyðingu í appinu
- Opnaðu LAMB4 appið og farðu í Notandi.
- Ýttu á „Eyða aðgangi“ neðst á síðunni.
- Skrifaðu ástæðu ef þú vilt. Það er valfrjálst.
- Skrifaðu EYÐA til að staðfesta og ýttu á „Senda beiðni“.
Við staðfestum eyðinguna innan 30 daga. Þú getur hætt við fram að því með því að senda okkur póst.
Ástæða (valfrjálst)
Skrifaðu EYÐA til að staðfesta
- Aðgangurinn þinn og innskráningin
- Tengiliðaupplýsingar: nafn, netfang, símanúmer, heimilisfang og kennitala
- Búfjárskráningar sem eru bara geymdar hjá LAMB
- Skráningar sem hafa farið í Fjárvís. Þær eru í opinberum skrám RML og Matvælastofnunar. Hafðu samband við RML vegna þeirra.
- Gögn sem aðrir á sömu bújörð þurfa áfram.
- Reikningar og bókhaldsgögn, eins lengi og bókhaldslög krefjast.
Ef eitthvað stoppar þig
Skilaboð sem geta birst
Birtist í appinu. Árgjaldið er ógreitt eða prufan er búin. Greiddu reikninginn og skráðu þig svo inn aftur.
Birtist á vefnum við innskráningu. Sama ástæða. Sjáðu stöðuna á reikningnum í tölvupóstinum eða hafðu samband.
Enginn reikningur er til fyrir árið á þessari kennitölu. Hafðu samband og við stofnum hann.
Það getur tekið allt að sólarhring fyrir greiðsluna að skila sér, því bankinn þarf að samstilla. Liggur á? Hafðu samband og við setjum það í forgang.