LAMB4

Framleiðsluárið · Sauðburður · Leiðbeining 14

Svona skráir þú burð

Þú skannar ána, skráir burðinn og svo hvert lamb, og sendir allt í Fjárvís í einu. Sama flæði og í fangi og þungavigtun: skanna, skrá, senda.

Fyrir sauðburð

Áður en þú byrjar

Taktu frá merki fyrir lömbin. Þá fyllist lambsnúmerið sjálft þegar þú skannar merkið. Sjá leiðbeiningu 7.
Samstilltu búið við Fjárvís, svo allar ær, fang og fósturtalning séu í appinu. Sjá leiðbeiningu 8.
Tengdu örmerkjalesarann og prófaðu eitt merki. Sjá leiðbeiningu 6.
Lélegt net í húsinu? Ekkert mál, burðurinn vistast í símanum. Sjá leiðbeiningu 9.
1

Skanna ána

  1. Á Heim, ýttu á Burðaskráning og svo +. Skjárinn Skrá burð opnast.
  2. Athugaðu dagsetninguna. Sjá um lásinn hér að neðan.
  3. Skannaðu ána. Hún fer í reitinn Ær og upplýsingar um hana birtast.
LAMB fyllir í fyrir þig. Ef fang er skráð á ána kemur hrúturinn sjálfur. Ef fósturtalning er skráð birtist hún, t.d. „Fósturtalning (18.02.2027): 2 fóstur“, og fjöldi lamba er stilltur eftir henni. Þú breytir bara ef annað kom í ljós.

Ekki með lesara? Leitaðu að ánni eftir valnúmeri eða nafni. Hrútinn getur þú líka valið eða skannað sjálf/ur.

Skrá burð
Dagsetning
08.05.20272
Ær
20-114 Rósa3
Hrútur (valfrjálst)
19-201 Kaldiúr fangi
Fjöldi lamba
Fósturtalning (18.02.2027): 2 fóstur
−2+
Dæmi.

Gott að skilja

Þegar þú velur ána

Um leið og ærin er skönnuð birtast upplýsingar um hana, svo þú sérð strax að þú ert með réttan grip.

  • Nafn og valnúmer, kyn og eyrnamerki.
  • Arfgerð: lituðu merkin, í sömu litum og með sömu heitum og í Fjárvís. Ýttu á merki til að sjá skýringu.
  • Upplýsingar um gripinn: faðir, móðir, fóstra, síðasta vigtun, gerð, fita, frjósemi og mjólkurgeta.
  • Fyrri athugasemdir, t.d. frá fangi eða haustvigtun.
Sama gildir um hrútinn, svo þú sérð arfgerð beggja foreldra lambanna.
Skrá burð
Ær
20-114 Rósa
i
Valnr: 20-114 · Kyn: Ær
Eyrnamerki: 937000004084451
[merki] [merki]
Upplýsingar um gripinn
Faðir: 15-880Móðir: 17-322S. vigtun: 68,5Frjósemi: [–]
Fyrri athugasemdir
Fang · 12.12.2026
Sædd
Dæmi.

Gott að skilja

Lásinn á dagsetningunni

Opinn lás (sjálfgefið): eftir hvern burð fer dagsetningin aftur á daginn í dag. Lokaður lás: dagsetningin heldur sér. Læstu henni þegar þú skráir burði frá öðrum degi, t.d. ef þú skráir af blaði eftir á.


2a

Skrá burðinn

  1. Veldu Niðurstöðu burðar. Oftast 1 - Ærin hélt.
  2. Athugaðu Fjölda lamba. Breyttu með − og +.
  3. Skrifaðu athugasemd ef þarf, t.d. „erfiður burður“ eða „hjálpað“.
  4. Ýttu á „Skrá lamb 1“. Burðurinn vistast og skráning fyrsta lambsins opnast.
Niðurstaða burðar 1 - Ærin hélt · 2 - Ærin lét · 3 - Ærin geld · 4 - Drapst fyrir burð · 5 - Óborin við voruppgjör · 6 - Gemlingur hafður geldur
Hélt ærin ekki? Veldu niðurstöðu 2–6 og vistaðu burðinn án lamba. Þá er skráð í Fjárvís hvað varð um ána.
Skrá burð
Fjárvís
SendaBíða
Niðurstaða burðar
1 - Ærin hélt▾1
Fjöldi lamba
−2+2
Athugasemd
Skrá lamb 14

2b

Skrá lömbin, eitt í einu

  1. Skannaðu merki lambsins. Ef merkið var tekið frá fyllist lambsnúmerið líka sjálft.
  2. Veldu kyn: Hrútur, Gimbrarlamb, Óþekkt eða Viðrini.
  3. Bættu við ef þarf: litur, litareinkenni, fóstramóðir, atburðir, vorfall og athugasemdir.
  4. Ýttu á „Vista lamb 1“. Næsta lamb opnast, „Skrá lamb 2 af 2“.
  5. Þegar öll lömbin eru skráð ýtirðu á „Ljúka skráningu“. Það stendur „2 lömb skráð!“ og skjárinn er tilbúinn fyrir næstu á.
Lambsnúmer og kyn eru skylda. Farðu yfir númerin áður en þú lýkur skráningu, svo sama númer fari ekki á tvö lömb.
Skrá lamb 1 af 2
Eyrnamerki
9370000040844521
Lambsnúmer *
0001frátekið
Kyn *
HrúturGimbrarlambÓþekktViðrini2
Litur · Fóstramóðir · Atburðir · Vorfall
Valfrjálst
Vista lamb 14

Gott að skilja

Senda eða bíða

Efst á hverjum burði er valið Fjárvís: Senda / Bíða.

  • Senda (sjálfgefið): burðurinn fer með næst þegar þú sendir í Fjárvís.
  • Bíða: burðurinn er geymdur í LAMB og fer ekki með. Notaðu það ef eitthvað er óvíst, t.d. hvort lamb lifir eða hvaða á á lambið. Breyttu svo í Senda þegar það er komið á hreint.

Gott að skilja

Athugasemdir

Athugasemd má skrifa bæði á burðinn og á hvert lamb. Hún er valfrjáls og hreinsast eftir hverja vistun. Athugasemdirnar eru geymdar í LAMB og fylgja ánni og lambinu. Þær birtast sem Fyrri athugasemdir næst þegar gripurinn er valinn, t.d. við haustvigtun.


3

Senda

Burðurinn fer ekki sjálfur í Fjárvís. Þegar þú ert búin/n, t.d. í lok dags, sendir þú allt í einu.

  1. Komdu símanum á net og opnaðu listann Burðaskráning.
  2. Kláraðu burði merkta „Vantar … lömb“ fyrst. Ýttu á burðinn til að bæta þeim við.
  3. Ýttu á „Senda til Fjárvís“. Fyrsta skiptið skráir þú þig inn í Fjárvís.
  4. Svo kemur yfirlitið: hve margt var skráð eða hafnað.
Það sem er farið í Fjárvís er endanlegt í LAMB. Farðu yfir listann áður en þú sendir.

Þú getur líka sent af vefnum: Burðalisti → Ósent → „Senda á Fjárvís“.

Burðaskráning
20-114 Rósa08.05.2027 · Skráð 2 af 2 lömbum
21-032Vantar 1 lömb2
21-047 Lukka08.05.2027 · Skráð 3 af 3 lömbum
Burðir sem bíða sendingarSenda til Fjárvís3

Ef eitthvað stoppar þig

Skilaboð sem geta birst

„Veldu ær“ / „Veldu niðurstöðu burðar“

Það vantar ána eða niðurstöðuna. Hvort tveggja er skylda.

„Sláðu inn lambsnúmer“ / „Veldu kyn“

Lambsnúmer og kyn eru skylda á hverju lambi.

„Vantar … lömb“

Færri lömb skráð en fjöldinn segir. Ýttu á burðinn í listanum og bættu við, eða lagaðu fjöldann.

Lambsnúmerið fylltist ekki

Merkið var ekki tekið frá. Skrifaðu númerið sjálf/ur, eða taktu frá merki fyrir næstu lömb, sjá leiðbeiningu 7.

„Fjárvís tók ekki við …“

Yfirlitið segir af hverju. Lagaðu burðinn í listanum og sendu aftur.

Þarftu aðstoð?

Tölvupósturinfo@lambehf.com
Sími+354 611-0469
Leiðbeiningarwiki.lambehf.com