LAMB4

Gripirnir · Leiðbeining 10

Svona finnur þú grip

Þú getur leitað á Heim, flett í gripalistanum, síað hann og raðað, eða einfaldlega skannað merkið. Þetta er grunnurinn að öllu öðru í appinu, því hver skráning byrjar á því að finna réttan grip.

Gott að skilja

Hvernig leitin raðar

Leitin finnur nafn, valnúmer, lambanúmer og örmerki. Það sem passar best kemur efst:

  1. Nákvæm samsvörun fyrst. Ef þú skrifar 35 kemur lamb nr. 0035 efst.
  2. Svo það sem endar á því sem þú skrifaðir, síðan það sem byrjar á því.
  3. Örmerki koma síðast, því löng númer passa oft við stuttar tölur.
Bandstrik skipta ekki máli. Að skrifa 20114 finnur líka 20-114.
Valnúmer tekur við af lambanúmeri. Þegar lamb fær valnúmer er leitað eftir því, ekki gamla lambanúmerinu.

Leið A

Leita á Heim

  1. Á Heim er leitarreitur: „Sláðu inn nafn, lambanúmer eða valnr“.
  2. Byrjaðu að skrifa. Gripir sem passa birtast strax fyrir neðan.
  3. Ýttu á grip til að opna spjaldið hans. Sjá leiðbeiningu 11.

Reiturinn hreinsast sjálfur þegar þú hefur opnað grip, svo hann er tómur næst.

Dalur
0035
Lamb · 2026
3
22-035 Snotra
Ær · 2022
0351
Lamb · 2026
21-047 Lukka
Örmerki 352…
Dæmi.

Leið B

Gripalistinn: sía og raða

1

Opnaðu listann

  1. Á Heim, ýttu á Ær, Hrútar eða Lömb. Listinn opnast með þeim gripum.
  2. Leitarreiturinn efst leitar í nafni, valnúmeri, lambanúmeri og örmerki.

Hver lína sýnir mynd, nafn, valnúmer, örmerki, fæðingardag, föður og móður, fjölda afkvæma og litaðan punkt fyrir hvern hóp sem gripurinn er í. Ýttu á línu til að opna spjald gripsins.

Ær212 gripir
Sía
20-114 Rósa
♂ 15-880 · ♀ 17-322 · 6 afkvæmi
21-032
♂ 16-201 · ♀ 18-090 · 3 afkvæmi
21-047 Lukka
♂ 16-201 · ♀ 17-005 · 4 afkvæmi
22-035 Snotra
♂ 19-201 · ♀ 18-311 · 1 afkvæmi
Dæmi. Punktarnir eru hópar.

2

Síaðu og raðaðu

Ýttu á „Sía“ við leitarreitinn. Þar velur þú hvaða gripir sjást og í hvaða röð. Neðst stendur hve margir passa: „Sýna … gripi“.

Sía eftirDæmi um notkun
Hópur / Án hópsAllir í „Ásetningur“, eða gripir sem eru ekki í neinum hóp
Tegund, aldur, fæðingarárVeturgamlar ær, eða lömb fædd 2026
Kyn lambaGimbralömb eða hrútlömb. Veldu fyrst Lömb undir Tegund.
ÖrmerkiGripir án örmerkis, sem á eftir að merkja
DNA-niðurstaða, arfgerðGripir án DNA-niðurstöðu, eða með tiltekna arfgerð
Litur, hornalag, ræktastaðaAllar kollóttar, eða allir mórauðir
MyndGripir án myndar
Farin dýrDauðir og seldir gripir eru faldir. Kveiktu á „Sýna farin dýr“ til að sjá þá.

Raða eftir valnúmeri, gripanúmeri, nafni, fæðingarári, örmerki, nýlega bætt við, nýlega breytt, heildareinkunn eða fjölda afkvæma, hækkandi eða lækkandi.

„Hreinsa síur“ setur allt á byrjunarreit. Segir listinn „Engir gripir passa við síurnar“? Þá eru síurnar of þröngar.
Ær
20-114 Rósa
2
SíaHreinsa síur
Hópur
ÁsetningurFyrir slátrunÁn hóps
Aldur
LambVeturgamalt2 ára og eldri
Örmerki
Með örmerkiÁn örmerkis
Arfgerð
[merki][merki]
Raða
Valnúmer ↑NafnHeildareinkunn
Sýna 18 gripi

3

Veldu marga gripi í einu

  1. Ýttu á gátlistatáknið efst („Velja gripi“).
  2. Hakaðu við gripi, eða ýttu á „Velja allt“ til að velja alla sem sjást í listanum.
  3. Veldu hvað á að gera:
    • Bæta í hóp
    • Taka úr hóp
    • Flytja út valda gripi eða alla í listanum
Sniðugt saman: síaðu fyrst, t.d. veturgamlar ær án örmerkis, ýttu svo á „Velja allt“ og settu þær í hóp. Þá ertu komin/n með vinnulista fyrir merkingu.
3 valin1
20-114 Rósa
21-032
21-047 Lukka
22-035 Snotra
Bæta í hópTaka úr hópFlytja út3

Leið C

Skanna merkið

Með lesarann tengdan skannar þú merkið á gripnum, á Heim eða í gripalistanum. Spjald gripsins opnast og efst stendur „Gripur fannst: …“.

Nánar í leiðbeiningu 7, leið C. Lesarann tengir þú eins og í leiðbeiningu 6.

„Enginn gripur fannst með merki …“ Merkið er ekki á neinum grip á búinu. Það gæti verið frátekið merki sem er ekki komið í lamb, eða gripur sem er ekki kominn úr Fjárvís. Prófaðu að samstilla, sjá leiðbeiningu 8.

Leið D

Á vefnum

Leitarreiturinn efst á öllum síðum Skrifaðu valnúmer, lambanúmer, nafn eða örmerki. Gripir birtast strax fyrir neðan. Ýttu á / hvar sem er til að fara beint í reitinn.
Síðan Gripir Flipar Allir · Ær · Hrútar · Lömb, val á fæðingarári og „Sýna dauða gripi“. Leitin finnur líka fæðingarár. Úr töflunni geturðu sett grip í hóp beint.
CSV og Excel sækja alla gripi sem passa við síuna, ekki bara þá sem sjást á skjánum. Gott fyrir lista til að prenta eða senda.
is.lambehf.com/gripir
AllirÆrHrútarLömbÖll ár ▾Sýna dauða gripi
ValnúmerNafnHópurÁr
20-114RósaÁsetn.2020
21-032–Ásetn.2021
CSVExcel

Ef eitthvað stoppar þig

Ef þú finnur ekki gripinn

„Engir gripir passa við leitina þína“

Athugaðu númerið. Prófaðu bara síðustu tölurnar, eða leitaðu eftir nafni.

Lambanúmerið finnur ekki lambið

Lambið hefur fengið valnúmer. Leitaðu eftir valnúmerinu, eða skannaðu merkið.

Gripurinn er dauður eða seldur

Farin dýr eru falin. Kveiktu á „Sýna farin dýr“ í síunni, eða „Sýna dauða gripi“ á vefnum.

Gripurinn er í Fjárvís en ekki í LAMB

Samstilltu búið, sjá leiðbeiningu 8.

„Engir gripir passa við síurnar“

Ýttu á „Hreinsa síur“.

Þarftu aðstoð?

Tölvupósturinfo@lambehf.com
Sími+354 611-0469
Leiðbeiningarwiki.lambehf.com