LAMB2 lokar þriðjudaginn 3. nóvember 2026
Svona færir þú þig yfir í LAMB4
LAMB2 er orðið gamalt kerfi og stenst ekki lengur þær öryggiskröfur sem eru gerðar í dag. Í samráði við RML og Advania lokum við því þriðjudaginn 3. nóvember til að vernda gögnin þín.
Gögnin þín í Fjárvís eru örugg. Allt sem er komið í Fjárvís birtist sjálfkrafa í LAMB4.
Fyrst — áður en LAMB2 lokar
Sendu gögnin úr LAMB2 í Fjárvís
Ertu með skráningar í LAMB2 sem hafa ekki verið sendar í Fjárvís, til dæmis vigtanir eða burð? Sendu þær úr LAMB2 í Fjárvís eins og þú ert vön/vanur, fyrir þriðjudaginn 3. nóvember. Það sem er ekki komið í Fjárvís þegar LAMB2 lokar færist ekki yfir.
- Opnaðu LAMB2.
- Sendu skráningarnar í Fjárvís eins og þú ert vön/vanur.
- Gakktu úr skugga um að allt hafi farið, áður en þú hættir að nota LAMB2.
Hvar ert þú stödd eða staddur?
Leið A
Ég hef aldrei skráð mig inn í LAMB4
Stofnaðu aðgang á vefnum
Farðu á is.lambehf.com/stofna-adgang í tölvu eða síma.
- Veldu flipann „Þegar með LAMB áskrift“ efst á síðunni.
- Sláðu inn kennitöluna sem LAMB áskriftin er skráð á. Nafnið kemur þá upp sjálfkrafa.
- Sláðu inn netfangið þitt. Það verður notandanafnið þitt í LAMB4.
- Veldu lykilorð, að minnsta kosti 6 stafi, og ýttu á „Stofna aðgang“.
Kennitala
Fullt nafn
Netfang
Lykilorð
Sæktu LAMB appið í símann
- Opnaðu Google Play í símanum.
- Leitaðu að LAMB.
- Ýttu á „Setja upp“.
Þú getur líka farið á is.lambehf.com/saekja í símanum og fylgt tenglinum þaðan.
Skráðu þig inn í appinu
- Opnaðu LAMB appið.
- Sláðu inn sama netfang og lykilorð og í skrefi 1.
- Ýttu á „Skrá inn“. Þá sérðu búið þitt og gripina.
Fyrsta samstillingin getur tekið smá stund ef hjörðin er stór. Hafðu símann tengdan neti á meðan.
Netfang
Lykilorð
Leið B
Ég er þegar með LAMB4 í símanum
Skráðu þig inn með netfanginu
Í LAMB4 skráir þú þig inn með netfanginu þínu, ekki notandanafninu sem þú notar í Fjárvís eða LAMB2.
- Opnaðu LAMB appið eða is.lambehf.com/innskraning.
- Sláðu inn netfangið sem þú skráðir þegar þú stofnaðir aðganginn.
- Sláðu inn lykilorðið og ýttu á „Skrá inn“.
Netfang
Ekki notandanafnið úr Fjárvís
Lykilorð
Gleymt lykilorð? Sæktu um nýtt
- Ýttu á „Gleymt lykilorð?“ undir innskráningunni, í appinu eða á vefnum.
- Sláðu inn netfangið þitt og ýttu á „Senda endurstillingarpóst“.
- Opnaðu póstinn frá LAMB og smelltu á tengilinn. Finnurðu hann ekki? Athugaðu ruslpóstinn.
- Veldu nýtt lykilorð. Það gildir strax, bæði á vefnum og í appinu.
Sláðu inn netfangið þitt og við sendum þér hlekk til að endurstilla lykilorðið
Netfang
Fyrir alla
Sæktu hópana þína úr LAMB2
Hóparnir sem þú bjóst til í LAMB2 appinu koma ekki sjálfkrafa. Þú sækir þá sjálf/ur á vefnum með einum hnappi. Gerðu það sem fyrst.
- Skráðu þig inn á is.lambehf.com í tölvu.
- Opnaðu Hópar í valmyndinni.
- Ýttu á „Sækja úr LAMB 2“ efst til hægri.
- Hakaðu við hópana sem þú vilt fá í LAMB4.
- Ýttu á „Setja … hópa inn“. Hóparnir birtast þá líka í appinu.
Þarftu aðstoð?
Við biðjumst velvirðingar á stuttum fyrirvara og þökkum þér fyrir að hafa notað LAMB2 öll þessi ár.
Kær kveðja,
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, LAMB ehf.