Að byrja · Leiðbeining 2
Svona sækir þú LAMB appið og skráir þig inn
Í appinu skráir þú vigtanir, burð og fleira úti í húsi, líka þar sem ekkert netsamband er. Það sem þú skráir fer sjálfkrafa á vefinn þegar síminn kemst í samband.
Áður en þú byrjar
Þú þarft tvennt
Sæktu appið í Google Play
- Opnaðu is.lambehf.com/saekja í símanum og ýttu á „Opna í Google Play“. Eða opnaðu Google Play og leitaðu að LAMB4.
- Gakktu úr skugga um að útgefandinn sé LAMB ehf.
- Ýttu á „Setja upp“. Appið birtist á heimaskjánum sem LAMB4.
Skráðu þig inn
- Opnaðu LAMB4 appið.
- Sláðu inn netfangið og lykilorðið sem þú notar á vefnum.
- Ýttu á „Skrá inn“.
Viltu sleppa því að slá inn lykilorðið í hvert sinn? Kveiktu á „Virkja líffræðilega innskráningu“ á innskráningarskjánum. Þá dugar fingrafarið eða andlitið næst.
Netfang
Lykilorð
Veldu bújörðina
Eftir innskráningu opnast Mínar Bújarðir. Þar eru búin sem þú tengdir á vefnum.
- Ýttu á bújörðina sem þú ætlar að vinna með.
- Appið sækir gripina niður í símann. Fyrsta skiptið getur tekið smá stund ef hjörðin er stór. Hafðu símann tengdan neti á meðan.
Næst þegar þú opnar appið ferðu beint inn á bújörðina sem þú valdir síðast.
Engin bújörð á listanum?
Þá eru tvær leiðir, eftir því hvort búið er skráð á þig í Fjárvís.
- Ýttu á + efst, eða „Bæta við bújörð úr Fjárvís“.
- Sláðu inn Fjárvís notandanafn og Fjárvís lykilorð og ýttu á „Skrá inn í Fjárvís“.
- Veldu bújörðina og ýttu á „Bæta við aðganginn“.
Til dæmis maki, foreldri eða bóndinn sem þú vinnur hjá. Fáðu aðgangskóða hjá viðkomandi. Nánar í leiðbeiningu 3.
- Ýttu á lykiltáknið efst.
- Sláðu inn kóðann, t.d. R7BF-9KV-PV7, og ýttu á „Ganga inn“.
Gleymt lykilorð? Sæktu um nýtt
- Ýttu á „Gleymt lykilorð?“ undir innskráningunni, í appinu eða á is.lambehf.com/gleymt-lykilord.
- Sláðu inn netfangið þitt og ýttu á „Senda endurstillingarpóst“.
- Opnaðu póstinn frá LAMB og smelltu á tengilinn. Finnurðu hann ekki? Athugaðu ruslpóstinn.
- Tengillinn opnar síðuna Nýtt lykilorð í vafranum. Veldu nýtt lykilorð, skrifaðu það aftur í „Staðfesta lykilorð“ og ýttu á „Uppfæra lykilorð“.
- Farðu aftur í appið og skráðu þig inn með nýja lykilorðinu. Það gildir strax, bæði á vefnum og í appinu.
Sláðu inn netfangið þitt og við sendum þér hlekk til að endurstilla lykilorðið
Netfang
Gott að vita
Áður en þú ferð út í hús
Skráningar geymast í símanum og fara upp þegar síminn kemst aftur í samband. Opnaðu appið einu sinni á netinu áður en þú ferð út í hús, svo nýjustu gögnin séu komin.
Ef appið segir „Ósendar skráningar“ þegar þú skráir þig út, ýttu þá ekki á „Skrá út samt“. Komdu símanum í netsamband og bíddu þar til allt er farið. Annars tapast skráningarnar.
Ætlarðu að nota lesara? Sjá leiðbeininguna Tengja örmerkjalesara.
Ef eitthvað stoppar þig
Skilaboð sem geta birst
Árgjaldið er ógreitt eða prufan er útrunnin. Greiddu reikninginn sem kom í tölvupósti eða heimabanka. Aðgangurinn opnast um leið og greiðslan hefur skilað sér.
Netfangið eða lykilorðið er rangt. Athugaðu að þú notir netfangið, ekki Fjárvís-notandanafnið. Ýttu á „Gleymt lykilorð?“ til að fá nýtt.
Síminn náði ekki sambandi. Færðu þig þangað sem netið er betra, eða tengstu Wi-Fi, og reyndu aftur.
Það er langt síðan þú skráðir þig inn síðast. Skráðu þig einfaldlega inn aftur.
Gamla LAMB4 appið af vefnum er enn í símanum. Sjá viðvörunina í skrefi 1.