Tæki · Leiðbeining 8
Svona virkar samstillingin
Gögnin þín ferðast þrjár leiðir: milli símans og LAMB, úr Fjárvís inn í LAMB, og úr LAMB í Fjárvís. Bara ein þeirra gerist sjálfkrafa. Hinar tvær gerast þegar þú ýtir á hnapp.
Í hnotskurn
Þrjár leiðir fyrir gögnin
Leið 1 · Sjálfkrafa
Síminn og LAMB
Allt sem þú skráir í appinu vistast fyrst í símanum. Þú getur því unnið úti í húsi eða í réttinni þótt ekkert net sé. Um leið og síminn kemst í samband fer það upp í LAMB, og hinir á búinu sjá það í sínum síma og á vefnum.
Efst á Heim sérðu stöðuna:
- Tengt við internet Allt fer upp jafnóðum.
- Engin nettenging Haltu áfram að skrá. Það bíður í símanum.
- Samstilli... Í gangi.
Leið 2 · Þegar þú ýtir
Sækja nýjustu gögnin úr Fjárvís
LAMB sækir ekki sjálft úr Fjárvís. Það sem er skráð í Fjárvís annars staðar, t.d. dómar, kynbótamat eða skráningar hjá RML, birtist ekki í LAMB fyrr en einhver á búinu samstillir.
Samstilltu búið
Þú sérð hvert atriði sótt: gripir, vigtanir, dómar, kynbótamat, fangskráningar, fósturtalningar, atburðir og örmerki. Hafðu símann í góðu sambandi á meðan.
Hvenær á að samstilla?
- Áður en vertíð hefst, t.d. fyrir fang, sauðburð og haustvigtun.
- Eftir að eitthvað var skráð í Fjárvís annars staðar, t.d. hjá RML eða í Fjárvís sjálfu.
- Þegar LAMB minnir þig á það. Ef búið hefur ekki verið samstillt í 30 daga birtist kort á Heim: „Síðast samstillt við Fjárvís …“. Ýttu á „Samstilla“ á kortinu.
Ekki í Fjárvís: 3
Misræmi: 2
Leið 3 · Þegar þú ýtir
Senda skráningar í Fjárvís
Það sem þú skráir í LAMB fer ekki sjálft í Fjárvís. Þú ákveður hvenær, með hnappnum „Senda í Fjárvís“. Fyrsta skiptið skráir þú þig inn í Fjárvís.
| Skráning | Fer í Fjárvís úr LAMB? | Hvar sendir þú |
|---|---|---|
| Vigtanir | Já | Vigtunarskjárinn í appinu, eða Vigtunarlisti á vefnum |
| Fang | Já | Listinn Fang í appinu, eða Fangskráning á vefnum. Sjá leiðbeiningu 12. |
| Örmerki (frátekin og á eldri gripi) | Já | Taka frá merki í appinu, eða Örmerki á vefnum. Sjá leiðbeiningu 7. |
| Breytingar á grip (nafn, örmerki) | Já | Spjald gripsins í appinu, undir Bíða sendingar |
| Burður | Já, fyrir sauðburð | Burðaskráning í appinu, eða Burðalisti á vefnum. Mundu að senda burðinn, hann fer ekki sjálfur. |
| Fósturtalning | Já | Listinn Fósturtalning í appinu, eða Fósturtalningalisti á vefnum. Sjá leiðbeiningu 13. |
Eftir sendingu sérðu yfirlit: hve mörgu var skilað, hve margt var þegar í Fjárvís og hvort einhverju var hafnað, með ástæðu.
Ef eitthvað stoppar þig
Skilaboð sem geta birst
Hluti náðist ekki, oftast vegna sambandsins. Reyndu aftur á betra neti. Það sem kom inn heldur sér.
Gögnin úr Fjárvís hafa aldrei verið sótt. Samstilltu eins og í leið 2.
Síminn hefur ekki náð sambandi enn. Opnaðu appið á neti og athugaðu að staðan sé „Tengt við internet“.
LAMB sækir ekki sjálft úr Fjárvís. Samstilltu búið eins og í leið 2.
Hún hefur ekki verið send. Sjáðu töfluna í leið 3 um hvar á að senda.