LAMB4

Tæki · Leiðbeining 9

Svona vinnur þú án nets

Appið er gert fyrir fjárhúsið og réttina, þar sem netið er oft lélegt eða ekkert. Þú skráir eins og venjulega og allt bíður öruggt í símanum þar til hann nær sambandi.

Það eina sem skiptir máli: byrjaðu á neti og endaðu á neti.

Heima, á neti

Áður en þú ferð út í hús

Opnaðu appið á neti. Bíddu þar til staðan á Heim er „Tengt við internet“. Þá eru nýjustu skráningar hinna á búinu komnar í símann.
Samstilltu við Fjárvís ef það er langt síðan, t.d. fyrir vertíð. Sjá leiðbeiningu 8.
Vertu inni á réttri bújörð. Appið opnar hana næst án nets.
Tengdu lesarann og prófaðu eitt merki. Bluetooth þarf ekki net. Sjá leiðbeiningu 6.
Hladdu símann og lesarann. Rafhlaðan klárast hraðar þegar síminn leitar að neti.
Ekki skrá þig út. Innskráning þarf net. Ef þú skráir þig út í húsinu kemstu ekki inn aftur fyrr en netið kemur.

Úti í húsi

Hvað virkar án nets?

Virkar án nets
  • Skrá vigtanir, fang, fósturtalningu og burð
  • Skanna merki og finna grip
  • Gripalistinn, leit og spjald gripsins
  • Setja gripi í hópa og taka úr hópum
  • Taka frá merki og setja merki á eldri gripi
  • Örmerkjalesarinn
Þarf net
  • Senda í Fjárvís
  • Samstilla frá Fjárvís
  • Sjá skráningar sem aðrir gera á sama tíma
  • Breytingaskrá grips
  • Búa til eða nota aðgangskóða
  • Innskráning og myndir af gripum
1

Skráðu eins og venjulega

Þegar netið dettur út breytist staðan efst á Heim í „Engin nettenging“. Þú þarft ekki að gera neitt. Haltu áfram að skanna og skrá.

Allt sem þú skráir vistast strax í símanum. Það sést í listunum hjá þér, en fer ekki upp í LAMB fyrr en netið kemur aftur.

Ef þið eruð tvö að skrá án nets sér hvort ykkar bara sínar skráningar. Þær sameinast þegar símarnir ná sambandi.
Dalur
Engin nettenging1
Vigtanir í dag
20-114 Rósa68,5 kg
21-03271,0 kg
21-047 Lukka64,2 kg
Dæmi. Allt er vistað í símanum.

2

Komdu símanum á net þegar þú ert búin/n

  1. Opnaðu appið þar sem er net, t.d. heima á Wi-Fi.
  2. Staðan fer í „Samstilli...“ og svo „Tengt við internet“. Þá er allt komið upp í LAMB og hinir á búinu sjá það.
  3. Athugaðu hvort einhver skráning sé merkt „Vistaðist ekki“. Þær eru efst í listanum og hver lína segir hvað fór úrskeiðis.
Ekki skrá þig út og ekki eyða appinu fyrr en þetta er búið. Ef appið segir „Ósendar skráningar“ þegar þú skráir þig út, ýttu á „Hætta við“, komdu símanum í net og bíddu.
Vigtanir
Tengt við internet
1 skráning komst ekki í gagnagrunninn. Hún er efst í listanum og línan segir hvað fór úrskeiðis.
21-032Vistaðist ekki3
Gripurinn er þegar með vigtun þennan dag.
20-114 Rósa68,5 kg
21-047 Lukka64,2 kg
Dæmi.

3

Sendu svo í Fjárvís

Það sem þú skráðir í húsinu fer ekki sjálft í Fjárvís. Þegar allt er komið upp í LAMB ýtirðu á „Senda í Fjárvís“, eins og lýst er í leiðbeiningu 8.

Segir appið „… vigtanir eru enn ósendar úr símanum“? Þá hefur síminn ekki klárað að senda upp í LAMB. Athugaðu sambandið, bíddu aðeins og reyndu aftur. Annars færu þær ekki með.
Vigtanir
3 vigtanir eru enn ósendar úr símanum. Athugaðu sambandið og reyndu aftur — annars myndu þær ekki fara með.
20-114 Rósa68,5 kg
21-047 Lukka64,2 kg
Senda í Fjárvís3

Ef eitthvað stoppar þig

Skilaboð sem geta birst

„Vistaðist ekki: Gripurinn er þegar með vigtun þennan dag“

Einhver annar á búinu vigtaði sama grip sama dag, t.d. í öðrum síma án nets. Sú vigtun sem kom fyrst upp gildir.

„Vistaðist ekki: Þú hefur ekki heimild …“

Þú ert áhorfandi á búinu, eða aðgangurinn breyttist. Talaðu við eiganda búsins, sjá leiðbeiningu 3.

„Ósendar skráningar“

Kemur þegar þú reynir að skrá þig út. Ýttu á „Hætta við“ og komdu símanum í net fyrst.

„Tenging rann út á tíma“

Netið er of veikt. Færðu þig þangað sem sambandið er betra, eða bíddu þar til þú ert heima.

„Náði ekki í breytingaskrána“

Breytingaskrá grips er ekki geymd í símanum. Opnaðu hana aftur þegar þú ert á neti.

Þarftu aðstoð?

Tölvupósturinfo@lambehf.com
Sími+354 611-0469
Leiðbeiningarwiki.lambehf.com