Hoppa yfir í efnið

Ósamræmi við Fjárvís

Undir Reikningar og stillingar → bújörðin þín finnur þú spjaldið Ósamræmi við Fjárvís. Það opnar síðu sem ber saman það sem LAMB hefur um búið og það sem Fjárvís hefur — í báðar áttir — og telur upp það sem stemmir ekki, með ástæðu við hverja línu.

Samanburðurinn er keyrður á hverri nóttu fyrir bú með LAMB-reikning. Efst á síðunni stendur hvaða nótt hann er frá og hvenær búið var síðast samstillt. „Ekkert ósamræmi" þýðir því ekkert ósamræmi í nótt — ekki „aldrei athugað".

Þrír flipar

Flipi Hvað er þar Hvað gerir þú
Í appinu, ekki í Fjárvís Skráningar sem urðu til í LAMB — vigtanir, burðir, fang, fósturtalningar, frátekin örmerki, breytingar á grip — sem aldrei komust til Fjárvís: aldrei sendar, Fjárvís hafnaði þeim, eða Fjárvís hefur eytt færslunni sem appið vísar á. Opnaðu skrána (hnappurinn Opna skrá) og sendu, lagaðu eða láttu vera. Þú ákveður.
Ber ekki saman Sama skráning á báðum stöðum með ólíku gildi: þungi, dagsetning, fjöldi lamba, hrútur … Sýnt sem gildið í LAMB → gildið í Fjárvís. Hér lendir líka gripur sem appið sýnir lifandi en Fjárvís skráir dánardag á. Athugaðu hvort er rétt. Fjárvís námundar þunga að heilu kílói — hálft kíló til eða frá er ekki talið ósamræmi.
Í Fjárvís, ekki í appinu Færslur sem Fjárvís hefur en appið ekki, þótt búið hafi verið samstillt eftir að þær urðu til. Samstilltu búið. Ef þær koma samt ekki inn, láttu okkur vita — það er villa okkar megin.

„Bíður samstillingar"

Færslur sem voru skráðar eða þeim breytt í Fjárvís eftir síðustu samstillingu eru ekki taldar upp — þær eiga eitt svar, Samstilla núna, og listi yfir 500 vigtanir úr réttum myndi kaffæra þau fáu atriði sem samstilling lagar ekki. Fjöldinn stendur í gula borðanum efst og skiptist eftir tegund.

Hvernig er parað?

  • Vigtanir, fang og fósturtalningar: á númeri færslunnar í Fjárvís, sem appið geymir þegar það sækir eða sendir.
  • Burðir: ær + burðardagur (± 1 dagur), því appið hefur ekkert Fjárvís-númer fyrir burð.
  • Frátekin örmerki: á tölustöfum merkisins.
  • Gripir: á gripanúmeri. Gripur sem Fjárvís skráir á annað bú er sagður á öðru búi, ekki ekki til.

Dauðir gripir eru ekki bornir saman færslu fyrir færslu — appið sækir aðeins lifandi gripi úr Fjárvís, svo gömul færsla á dauðum grip er ekki ósamræmi heldur hönnun.

Hvað er ekki gert

Síðan lagar ekkert sjálf. Hún bendir; þú ákveður. Sendingar og endursendingar eru á sínum stað í skránum (sjá Þungavigtun, Burðaskráning, Forskrá örmerki).