LAMB4

Tæki · Leiðbeining 6

Svona tengir þú örmerkjalesara við appið

Með lesara tengdan skannar þú örmerkið og númerið fyllist sjálft inn, hvort sem þú ert að vigta, skrá burð eða finna grip. Þú tengir einu sinni og tengingin gildir í öllu appinu.

Áður en þú byrjar

Lesarinn þarf að vera rétt stilltur

Flestar villur koma frá stillingum í lesaranum sjálfum, ekki frá appinu. Lesarinn þarf að senda 15 stafa tölu, t.d. 937000004084450, og ekkert annað. Svona stillir þú algengustu lesarana:

LesariBluetoothSnið á númeriAnnað
Trítill (Búval)Bluetooth-hamur: SPPÞarf ekki að breytaEkkert annað. Bara SPP og tengja.
Tru-Test SRS2 / XRS2Bluetooth Mode: App (ekki HID)EID Format: Decimal, Country Code: ShowContinuous Scan: Off. Byrjaðu New Session.
Hvíti lesarinn (Dyrfinna / H20-AS)BT Mode: SPP ModeOutput Mode: Decimal eingönguTimePrefix/Suffix: OFF, Prefix/Suffix: None. Hreinsaðu minnið (Clear History).
Gallagher HR4 / HR5Para í stillingum símansEID or VID: EID, Tag Prefix: tómtCont. Mode: Off. Byrjaðu New Session. Initial Character: None.
Allflex APR250 / APR600Profile: Serial (SPP), Discoverable: ON, PIN 1234Format: Decimal, 15 digits, Country Code: ShowReading Mode: Single Read, Repeat Read: Off, Prefix/Suffix: None.
Ítarlegri leiðbeiningar fyrir hvern lesara, valmynd fyrir valmynd, eru á wiki.lambehf.com. Í öllum lesurum: stilltu bil (Delimiter) á None. Þarftu ítarlegri leiðbeiningar fyrir þinn lesara? Umboðsaðilinn sem seldi þér hann getur aðstoðað.
1

Paraðu lesarann við símann

Þetta er gert í stillingum símans, ekki í LAMB, eins og með heyrnartól eða önnur Bluetooth-tæki.

  1. Kveiktu á lesaranum.
  2. Í símanum: opnaðu Stillingar → Tengd tæki → Bluetooth og veldu Para nýtt tæki. Heitin geta verið aðeins önnur eftir símum.
  3. Veldu lesarann þegar hann birtist, t.d. APR250_XXXX. Ef beðið er um PIN er það oftast 1234 eða 0000.
Lesari getur bara verið tengdur einum síma í einu. Ef hann finnst ekki, athugaðu hvort hann sé tengdur öðrum síma eða tölvu.
Bluetooth
Bluetooth
+ Para nýtt tæki
Tiltæk tæki
APR250_1A2B
Ýttu til að para
3
Heyrnartól
Stillingar símans. Útlitið er mismunandi eftir símum.

2

Opnaðu Blátönn í LAMB appinu

  1. Opnaðu LAMB4 appið og farðu inn á bújörðina.
  2. Ýttu á Blátönn í stikunni neðst.
  3. Í fyrsta skiptið biður appið um Bluetooth- og staðsetningarheimildir. Ýttu á „Opna stillingar“ og leyfðu allt.
  4. Stendur „Slökkt er á Bluetooth“? Ýttu á „Kveikja á Bluetooth“.
Af hverju staðsetning? Android krefst hennar til að leita að Bluetooth-tækjum. LAMB notar hana ekki til neins annars.
Dalur

3

Tengstu lesaranum

  1. Lesarinn birtist undir Pöruð tæki, merktur „Parað - Ýttu til að tengjast“.
  2. Ýttu á hann. Það stendur „Tengist...“ í smá stund og svo „Tengt við …“.

Sérðu hann ekki? Ýttu á „Finna tæki“. Ef hann birtist undir Fundin tæki merktur „Ekki parað - Paraðu í stillingum“, þá á eftir að para hann í símanum. Farðu aftur í skref 1.

Blátannartæki
Pöruð tæki
APR250_1A2B
Parað - Ýttu til að tengjast
2
Finna tæki
Fundin tæki
HR5 [númer]
Ekki parað - Paraðu í stillingum

4

Prófaðu með einu merki

  1. Þegar tengingin er komin birtist kortið Skanna merki.
  2. Haltu merki að lesaranum og skannaðu.
  3. Númerið birtist undir Síðast skannað merki. Athugaðu að það sé 15 tölustafir, án bókstafa og án bils.

„Hreinsa“ tekur númerið út aftur. Til að aftengja ýtirðu aftur á lesarann í listanum („Tengt - Ýttu til að aftengja“).

Kemur rugl, bókstafir eða mörg númer í einu? Þá er lesarinn ekki rétt stilltur. Sjá töfluna efst og „Gullnu regluna“ hér að neðan.
Blátannartæki
Tengt við APR250_1A2B
APR250_1A2B
Tengt - Ýttu til að aftengja
3
Skanna merki
Haltu merki að lesaranum til að prófa tenginguna
Síðast skannað merki
937000004084450
Hreinsa

5

Byrjaðu að skrá

Tengingin gildir í öllu appinu. Farðu beint í t.d. vigtun eða burðarskráningu og skannaðu. Númerið fyllist sjálft inn í réttan reit.

  • Punktur á Blátönn-tákninu neðst sýnir að lesarinn er tengdur.
  • Detti tengingin út reynir appið sjálft að tengjast aftur. Þá stendur „Endurtengist...“ neðst.
  • Takist það ekki, opnaðu Blátönn og ýttu aftur á lesarann.
Byrjaðu nýja vinnulotu í lesaranum (New Session / hreinsa minni) áður en þú ferð í réttina eða húsið. Annars getur hann sent gömul númer inn þegar hann tengist.
Dalur

Gullna reglan

Er það lesarinn eða appið?

Prófaðu lesarann utan LAMB. Þá veistu strax hvar vandinn liggur.

  1. Opnaðu einhvern textareit í símanum, t.d. Notes eða leit í vafranum.
  2. Skannaðu eitt örmerki.
Rétt númer kemur, t.d. 937000004084450: lesarinn er rétt stilltur. Vandinn er í pörun eða tengingu. Byrjaðu aftur á skrefi 1.
Bókstafir (LA, L), undarlegir stafir eða mörg númer: stillingarnar í lesaranum eru rangar. Sjá töfluna efst.

Ef eitthvað stoppar þig

Skilaboð sem geta birst

„Tenging mistókst: Vinsamlegast paraðu tækið í Bluetooth stillingum Android“

Lesarinn sést í appinu en hefur ekki verið paraður við símann. Gerðu skref 1.

„Tenging mistókst: Prófaðu að afpara og para tækið aftur í Android stillingum“

Farðu í Bluetooth-stillingar símans, veldu lesarann og Gleyma / Afpara. Paraðu hann svo aftur.

„Þjónusta ekki tiltæk. Prófaðu að endurræsa bæði tækin.“

Slökktu á símanum og lesaranum, kveiktu aftur og tengdu.

„Ógilt númer“ eða ekki hægt að skrá

Oftast er bil í númerinu. Stilltu bil (Delimiter / Mark) á None í lesaranum.

Gömul númer streyma inn þegar lesarinn tengist

Lesarinn sendir minnið sitt. Byrjaðu New Session eða hreinsaðu minnið, og slökktu á samfelldum lestri (Continuous).

Þarftu aðstoð?

Tölvupósturinfo@lambehf.com
Sími+354 611-0469
Leiðbeiningarwiki.lambehf.com