Tæki · Leiðbeining 7
Svona skannar þú og tengir örmerki
Með örmerkjalesara getur þú tekið frá merki fyrir lömbin, sett merki á eldri gripi og fundið grip bara með því að skanna hann. Ertu með lista af merkjum? Þá lest þú hann inn á vefnum í einu lagi.
Hvað viltu gera?
Leið A
Taka frá merki fyrir lömbin
Þú skannar merkin áður en sauðburður hefst og hvert merki fær lambsnúmer. Þegar þú skráir burð og skannar merkið fyllast bæði örmerki og lambsnúmer sjálf inn.
Opnaðu „Taka frá merki“ og veldu ham
- Á Heim, undir Merki, ýttu á „Taka frá merki“.
- Efst á að standa „Blátönn tengd — skannaðu eyrnamerki“.
- Veldu ham:
- Skanna og númera: hvert merki fær næsta lambsnúmer um leið. Best þegar merkin eru í röð.
- Skanna allt, númera svo: skannaðu allan bunkann fyrst, svo „Úthluta öllum“.
- Athugaðu Byrjunarnúmer lambs. Það heldur sjálft áfram frá hæsta númerinu sem er þegar frátekið.
Skannaðu og sendu í Fjárvís
- Skannaðu merkin, eitt í einu. Hvert þeirra fer efst á listann.
- Neðst stendur „… örmerki bíða sendingar“. Ýttu á „Senda í Fjárvís“.
- Fyrsta skiptið þarftu að skrá þig inn í Fjárvís. Svo kemur yfirlit: hve mörg voru skráð, hve mörg voru þegar í Fjárvís og hvort einhverju var hafnað.
Skannaðu sama merkið tvisvar og appið segir „Merki þegar skannað“. Það skráist ekki aftur.
0 voru þegar í Fjárvís.
Leið B · Nýtt í appinu
Setja merki á eldri grip
Fyrir lifandi grip sem er þegar til, t.d. á sem missti merkið eða var aldrei merkt. Þú tengir merkið við valnúmer gripsins og sendir í Fjárvís.
Skannaðu og sláðu inn valnúmer
- Opnaðu „Taka frá merki“ og veldu haminn „Fullorðinn gripur“.
- Skannaðu nýja merkið. Glugginn „Merki á fullorðinn grip“ opnast með merkinu útfylltu.
- Sláðu inn valnúmer gripsins. Appið sýnir hvaða grip það finnur.
- Ýttu á „Vista“. Þá stendur „Merki … parað við …“ og merkið bíður sendingar.
- Ýttu á „Senda í Fjárvís“ neðst þegar þú ert búin/n.
Ertu með marga gripi og lista yfir merki og valnúmer? Þá er fljótlegra að lesa listann inn á vefnum, sjá leið D.
Örmerki
Valnúmer
Leið C
Finna grip með því að skanna
Skannaðu, spjaldið opnast
- Vertu á Heim eða í gripalistanum, með lesarann tengdan.
- Skannaðu merkið á gripnum.
- Spjald gripsins opnast og efst stendur „Gripur fannst: …“.
„Enginn gripur fannst með merki …“ þýðir að merkið er ekki á neinum grip á búinu. Það gæti verið frátekið merki sem er ekki komið í lamb, eða gripur sem er ekki enn kominn úr Fjárvís. Prófaðu að samstilla.
Leið D · Á vefnum
Lesa inn lista af örmerkjum
Fékkstu skrá frá söluaðila merkjanna, eða ertu með lista í Excel? Þá setur þú öll merkin inn í einu lagi, í stað þess að skanna hvert og eitt. Þú sérð allt og staðfestir áður en nokkuð er vistað.
Veldu tegund og hladdu upp skránni
- Skráðu þig inn á is.lambehf.com og opnaðu Örmerki → Innflutningur.
- Veldu hvað merkin eiga að fara á:
- Ófætt: merkin eru tekin frá fyrir lambanúmer, eins og í leið A.
- Fædd lömb: merkin fara beint á lömb sem eru þegar skráð, eftir lambanúmeri.
- Fullorðinn gripur: merkin fara á gripi eftir valnúmeri, eins og í leið B.
- Ýttu á „Velja skrá“ og veldu CSV- eða Excel-skrána.
Veldu dálka, yfirfarðu og staðfestu
- Segðu til um hvaða dálkur í skránni er Örmerki og hvaða dálkur er Lambanúmer eða Valnúmer.
- Farðu yfir listann. Hver lína er merkt tilbúin, til yfirferðar eða hafnað, með ástæðu.
- Ýttu á „Forskrá … örmerki“, „Uppfæra … lömb“ eða „Uppfæra … gripi“.
- Sendu í Fjárvís:
- Ófætt: undir Örmerki → Listi, flipanum Ósent, ýtirðu á „Senda á Fjárvís“.
- Fullorðinn gripur: hnappurinn „Senda í Fjárvís“ birtist strax eftir innflutninginn.
- Fædd lömb: merkin fara á lambaskráningarnar og fara í Fjárvís þegar þú sendir burðinn. Sjá leiðbeiningu 8.
Ef eitthvað stoppar þig
Skilaboð sem geta birst
Lesarinn er ekki tengdur. Sjá leiðbeiningu 6.
Annar gripur á búinu er með þetta merki. Athugaðu hvort þú skannaðir rétt merki.
Athugaðu valnúmerið. Gripur sem er skráður dauður eða farinn finnst ekki hér.
Þú ert á búi sem einhver annar á. Eigandinn getur veitt þér heimild til að senda í Fjárvís. Sjá leiðbeiningu 3.
Oftast vantar netsamband. Það sem eftir er bíður og fer með næstu sendingu. Ýttu aftur á „Senda í Fjárvís“ þegar netið er komið.