LAMB4

Framleiðsluárið · Réttir og haust · Leiðbeining 16

Svona notar þú hópa

Hópur er listi af gripum sem þú setur saman sjálf/ur, t.d. ásetningslömb, sláturlömb eða ær sem á að sprauta. Þú skannar gripina inn í réttinni, og svo hefurðu listann til að vinna eftir, sía eða senda áfram.

Dæmi um hópa

Ásetningur 2026 Fyrir slátrun Sprauta í vikunni Til sölu Vantar örmerki

Gripur getur verið í mörgum hópum í einu. Hóparnir eru sameiginlegir öllum á búinu og hafa engin áhrif á Fjárvís.

1

Búðu til hóp

  1. Á Heim, ýttu á Hópar og svo +. Skjárinn Búa til hóp opnast.
  2. Gefðu hópnum heiti, t.d. „Ásetningur 2026“. Lýsing er valfrjáls.
  3. Veldu lit. Liturinn birtist sem punktur við gripina í gripalistanum, svo veldu ólíka liti fyrir hópa sem þú notar saman.
  4. Ýttu á vista. Það stendur „Hópur „…“ búinn til“.
Á vefnum Opnaðu Hópar og ýttu á „Nýr hópur“. Nafn, lýsing og litur, svo „Stofna“.
Varstu með hópa í LAMB2? Á vefnum, undir Hópar, sækirðu þá með einum hnappi, „Sækja úr LAMB 2“. Sjá leiðbeiningu 5.
Búa til hóp

Heiti hóps

Ásetningur 20262

Lýsing (valfrjálst)

Gimbrar og hrútlömb til lífs

Litur hóps

3
Vista4

2

Settu gripi í hópinn

Fljótlegast í réttinni

A. Skanna beint inn í hópinn

  1. Í Hópar, ýttu á hópinn til að opna hann.
  2. Með lesarann tengdan skannarðu gripina einn af öðrum. Hver og einn fer beint í hópinn.
  3. Ekki með lesara? Skrifaðu nafn, eyrnamerki eða númer í leitarreitinn og ýttu á gripinn.
Skannaðirðu grip sem er þegar í hópnum? Appið spyr hvort þú viljir taka hann úr hópnum. Gott til að leiðrétta. Þú getur hakað við „Ekki sýna þessa viðvörun aftur“.
Ásetningur 202624 gripir
Leita að gripum2
0035 bætt við hóp!
0035Lamb · Hrútur
0034Lamb · Gimbur
0029Lamb · Gimbur
0021Lamb · Hrútur
Dæmi.
B. Marga í einu úr gripalistanum

Síaðu gripalistann, t.d. veturgamlar ær, ýttu á „Velja gripi“, svo „Velja allt“ og „Bæta í hóp“. Sjá leiðbeiningu 10.

C. Af spjaldi gripsins

Í kaflanum Hópar á spjaldinu: „Bæta í hóp“ og velja hóp. Sjá leiðbeiningu 11.

D. Á vefnum

Veldu hópinn undir Hópar, skrifaðu valnúmer í „Valnúmer eða númer...“ og ýttu á „Bæta við“. Í gripatöflunni á vefnum geturðu líka sett grip í hóp beint.


3

Notaðu hópinn

  • Vinnulisti: opnaðu hópinn og farðu yfir gripina einn af öðrum.
  • Sía gripalistann eftir hóp, t.d. til að raða eftir heildareinkunn innan ásetningsins. Sjá leiðbeiningu 10.
  • Sjá í fljótu bragði: lituðu punktarnir við gripi í listanum og á spjaldi sýna hópana þeirra.
  • Senda áfram: deilitáknið inni í hópnum gefur CSV, Excel, deila eða senda í tölvupósti. Gott fyrir sláturhúsið, kaupanda eða dýralækni.
Hópar+
Ásetningur 2026
24 gripir · Búið til í dag
⋮
Fyrir slátrun
112 gripir · fyrir 3 dögum
⋮
Sprauta í vikunni
18 gripir · í gær
⋮
Vantar örmerki
7 gripir · fyrir 12 dögum
⋮
↗ Deila / Flytja út, inni í hópnum CSVExcelDeilaSenda í tölvupósti

4

Breyta, fjarlægja og eyða

Breyta hópnumPunktarnir þrír á hópnum í listanum → Breyta hóp. Heiti, lýsing og litur.
Taka grip úr hópiInni í hópnum, af spjaldi gripsins, eða marga í einu úr gripalistanum með „Taka úr hóp“.
Eyða hópnumPunktarnir þrír → Eyða hóp. Gripirnir sjálfir eyðast ekki, bara listinn.
Hópur sem er búinn að gera sitt gagn má gjarnan eyða, t.d. „Fyrir slátrun“ eftir slátrun, svo listinn haldist hreinn. Eða gefðu hópnum ártal í heitið og haltu honum sem sögu.

Ef eitthvað stoppar þig

Skilaboð sem geta birst

„Heiti hóps verður að vera að minnsta kosti 2 stafir“

Gefðu hópnum lengra heiti.

„Engir hópar til. Búðu fyrst til hóp.“

Það eru engir hópar á búinu. Búðu til hóp eins og í skrefi 1.

„Gripur þegar í hópi“

Gripurinn sem þú skannaðir er þegar í hópnum. Veldu hvort hann eigi að fara úr hópnum eða ekki.

„Enginn gripur fannst með merki …“

Merkið er ekki á neinum grip á búinu. Leitaðu eftir númeri, eða samstilltu búið. Sjá leiðbeiningu 8.

„Gripur #… finnst ekki í bústofninum“

Á vefnum: númerið passar ekki við grip á búinu. Athugaðu valnúmerið.

Þarftu aðstoð?

Tölvupósturinfo@lambehf.com
Sími+354 611-0469
Leiðbeiningarwiki.lambehf.com