LAMB4

Framleiðsluárið · Fengitími · Leiðbeining 12

Svona skráir þú fang

Þú skannar ána og hrútinn, vistar, og sendir svo allt í Fjárvís í einu. Þetta er sama flæði og í þungavigtun: skanna, skrá, senda.

Fyrir fengitímann

Áður en þú byrjar

Samstilltu búið við Fjárvís, svo allar ær og hrútar séu í appinu. Sjá leiðbeiningu 8.
Tengdu örmerkjalesarann og prófaðu eitt merki. Sjá leiðbeiningu 6.
Lélegt net í húsinu? Ekkert mál, fangið vistast í símanum. Sjá leiðbeiningu 9.
1

Skanna

  1. Á Heim, ýttu á Fang og svo +. Skjárinn Skrá fang opnast.
  2. Athugaðu fangdagsetninguna. Sjá um lásana hér að neðan.
  3. Skannaðu ána. Hún fer í reitinn Ær.
  4. Skannaðu hrútinn. Hann fer í reitinn Hrútur. Hrútur er valfrjáls.

Ekki með lesara? Leitaðu að ánni og hrútnum eftir valnúmeri eða nafni í reitunum.

Skrá fangSkráð: 12
Fangdagsetning
12.12.20262
Ær
20-114 Rósa3
Hrútur (valfrjálst)
19-201 Kaldi4
Athugasemd
Vista fang

Gott að skilja

Þegar þú velur ána

Um leið og ærin er skönnuð birtast upplýsingar um hana, svo þú sérð strax að þú ert með réttan grip og hvað þarf að hafa í huga.

  • Nafn og valnúmer, kyn og eyrnamerki. Athugaðu að þetta sé rétta ærin.
  • Arfgerð. Lituðu merkin sýna riðuarfgerðina, í sömu litum og með sömu heitum og í Fjárvís. Ýttu á merki til að sjá skýringu á því.
  • Upplýsingar um gripinn: faðir, móðir, fóstra, síðasta vigtun, gerð, fita, frjósemi og mjólkurgeta.
  • Fyrri athugasemdir, sjá hér að neðan.
Sama gildir um hrútinn. Þannig sérðu arfgerð beggja áður en þú vistar fangið.
Skrá fang
Ær
20-114 Rósa
i
Valnr: 20-114 · Kyn: Ær
Eyrnamerki: 937000004084451
[merki] [merki]
Ýttu á merki til að sjá skýringu
Upplýsingar um gripinn
Faðir: 15-880Móðir: 17-322S. vigtun: 68,5Frjósemi: [–]Gerð: [–]Fita: [–]
Dæmi. Litir og heiti merkjanna koma úr Fjárvís.

Gott að skilja

Lásarnir tveir

Við dagsetninguna og hrútinn er lás. Hann ræður hvort reiturinn haldi sér eða hreinsist þegar þú vistar og byrjar á næstu á. Báðir eru opnir þegar þú opnar skjáinn.

Opinn lás

Eftir „Vista fang“:
Dagsetningin fer aftur á daginn í dag.
Hrúturinn hreinsast og þú skannar nýjan.

Lokaður lás

Eftir „Vista fang“:
Dagsetningin heldur sér.
Hrúturinn heldur sér. Þú skannar bara næstu á.

Læstu dagsetningunni þegar þú skráir fang frá öðrum degi, t.d. ef þú skráir í kvöld það sem gerðist í gær. Annars fer hver ný skráning á daginn í dag.
Læstu hrútnum þegar sami hrútur fer á margar ær í röð. Opnaðu lásinn þegar þú skiptir um hrút.

Ærin hreinsast alltaf, svo þú skráir aldrei sömu ána tvisvar óvart. Ýttu á lásinn til að opna hann eða loka.

Gott að skilja

Athugasemdir

Í reitnum Athugasemd skrifar þú það sem þú vilt muna um ána eða fangið, t.d. „gekk upp aftur“, „sædd“ eða „halt á vinstri“. Reiturinn er valfrjáls og hreinsast eftir hverja vistun.

Um leið og þú skannar ána birtast Fyrri athugasemdir hennar fyrir neðan. Þar sérðu allt sem hefur verið skrifað um hana: við vigtun, burð, fang og almennar athugasemdir, merkt hvaðan það kemur. Þú sérð þá strax ef eitthvað þarf að hafa í huga með þessa á.

Athugasemdirnar eru geymdar í LAMB og fylgja ánni. Þú sérð þær líka á spjaldi hennar, í appinu og á vefnum.
Skrá fang
Ær
20-114 Rósa
Athugasemd
gekk upp aftur✎
i
Fyrri athugasemdir
Burður · 02.05.2026
Tvílembd, annað lambið lítið
Vigtun · 20.09.2026
Halt á vinstri framfæti
Fang · 14.12.2025
Sædd
Dæmi.

2

Skrá

  1. Skrifaðu athugasemd ef þarf. Það er valfrjálst. Sjá um athugasemdir hér að ofan.
  2. Ýttu á „Vista fang“. Það stendur „Fang skráð“ og teljarinn efst hækkar.
  3. Skjárinn er strax tilbúinn fyrir næstu á. Það sem er læst heldur sér. Skannaðu næstu á.
Rangt skráð? Í listanum Fang geturðu breytt skráningu eða eytt henni, svo lengi sem hún er ekki farin í Fjárvís.
Skrá fangSkráð: 132
Fang skráð
Fangdagsetning
12.12.2026
Ær
Skannaðu næstu á3
Hrútur (valfrjálst)
19-201 Kaldi
Vista fang

3

Senda

Fangið fer ekki sjálft í Fjárvís. Þegar þú ert búin/n, t.d. í lok dags eða þegar fengitímanum lýkur, sendir þú allt í einu.

  1. Komdu símanum á net og opnaðu listann Fang.
  2. Neðst stendur hve margar fangskráningar bíða sendingar til Fjárvís. Ýttu á „Fjárvís“.
  3. Fyrsta skiptið skráir þú þig inn í Fjárvís.
  4. Svo kemur yfirlitið „Sending til Fjárvís“: hve margt var skráð, uppfært eða hafnað.
Það sem er farið í Fjárvís er endanlegt í LAMB. Farðu yfir listann áður en þú sendir.

Þú getur líka sent af vefnum: Fangskráning → Ósent → „Senda á Fjárvís“. Þar er gott að fara yfir langan lista.

Fang
20-114 RósaHrútur: 19-201 Kaldi · 12.12.2026
21-032Hrútur: 19-201 Kaldi · 12.12.2026
21-047 LukkaHrútur: 20-188 Spakur · 12.12.2026
13 fangskráningar bíða sendingar til FjárvísFjárvís2

Ef eitthvað stoppar þig

Skilaboð sem geta birst

„Veldu á“

Það vantar ána. Skannaðu hana, eða leitaðu að henni í reitnum Ær.

Ekkert gerist þegar ég skanna

Merkið finnst ekki á neinum grip á búinu. Leitaðu að ánni eftir valnúmeri, og samstilltu búið ef gripinn vantar. Ef bæði ær og hrútur eru þegar valin gerir skönnun ekkert. Hreinsaðu reit fyrst.

„Fjárvís tók ekki við …“

Yfirlitið segir af hverju. Lagaðu skráninguna í listanum og sendu aftur.

„Sendingin stöðvaðist …“

Oftast vantar netsamband. Það sem komst á skrá er skráð, hitt bíður og fer með næstu sendingu.

Ég má ekki senda

Þú þarft heimildina „Má senda í Fjárvís“ frá eiganda búsins. Sjá leiðbeiningu 3.

Þarftu aðstoð?

Tölvupósturinfo@lambehf.com
Sími+354 611-0469
Leiðbeiningarwiki.lambehf.com