Að byrja · Leiðbeining 3
Svona vinnur þú með fleirum á sama búi
Fleiri en einn geta verið á sömu bújörð í LAMB. Allir sjá sömu gripina, skráningar hvers og eins berast í síma hinna og það sést hver skráði hvað.
Þú hleypir öðrum inn með aðgangskóða. Enginn tölvupóstur og engin bið.
Hvað viltu gera?
Fyrst
Hver má gera hvað?
Hver sem fær aðgang fær eitt af þremur hlutverkum. Þú velur það þegar þú býrð til kóðann.
| Eigandi | Samstarfsmaður | Áhorfandi | |
|---|---|---|---|
| Sjá alla hjörðina | Já | Já | Já |
| Skrá og breyta | Já | Já | Nei |
| Eyða skráningu sem er ekki farin í Fjárvís | Hvaða sem er | Bara sínum eigin | Nei |
| Senda í Fjárvís | Já | Bara ef þú leyfir | Nei |
| Sækja nýjustu gögn úr Fjárvís | Já | Já | Nei |
| Hleypa öðrum inn | Já | Nei | Nei |
Leið A · Fyrir eiganda
Hleypa öðrum inn á búið
Opnaðu aðgangslistann
Þá opnast Aðgangur að bújörð. Þar sérðu alla sem hafa aðgang núna.
Búðu til kóða
- Ýttu á „Bjóða fólki aðgang“.
- Veldu hlutverk: Samstarfsmaður skráir og breytir eins og þú. Áhorfandi sér allt en skráir ekkert.
- Á viðkomandi að mega senda í Fjárvís? Kveiktu þá á „Má senda í Fjárvís“. Sjálfgefið er slökkt.
- Ýttu á „Búa til kóða“.
Komdu kóðanum til skila
Lestu kóðann upp, skrifaðu hann niður, eða ýttu á „Afrita kóða“ og sendu hann í skilaboðum. Í honum eru aldrei 0, O, 1, I eða L, svo það er ekki hægt að misheyra hann.
- Einnota. Hann hættir að virka um leið og einhver notar hann.
- Gildir í 7 daga. Svo fellur hann úr gildi.
- Hægt að afturkalla. Ónotaðir kóðar eru á sama skjá, með „Afturkalla“.
Viðkomandi fylgir svo leið B hér að neðan.
Leið B
Ég fékk kóða frá öðrum
Gakktu inn með kóðanum
Þú þarft þinn eigin LAMB aðgang. Áttu hann ekki? Byrjaðu á leiðbeiningu 1, og ýttu á „Sleppa í bili“ þegar þú ert beðin/n um að tengja bú.
- Sláðu inn kóðann. Hástafir, bil og bandstrik skipta ekki máli.
- Ýttu á „Ganga inn“.
Bújörðin birtist strax í listanum og síminn byrjar að sækja hjörðina.
Leið C
Bæta öðru búi við úr Fjárvís
Ertu með fleiri en eitt uppgjör skráð á þig í Fjárvís? Þú bætir þeim við hvenær sem er.
- Farðu í Prófíll → Uppgjör og ýttu á „Bæta við uppgjöri“.
- Sláðu inn innskráninguna í Fjárvís og ýttu á „Sækja uppgjör“.
- Hakaðu við uppgjörin og vistaðu. Samstilling hefst sjálfkrafa.
- Opnaðu Mínar Bújarðir og ýttu á + efst.
- Sláðu inn Fjárvís notandanafn og lykilorð og ýttu á „Skrá inn í Fjárvís“.
- Veldu bújörðina og ýttu á „Bæta við aðganginn“.
Ef þú skiptir um skoðun
Breyta aðgangi eða hætta
Allt þetta er gert á sama skjá, Aðgangur að bújörð. Eigandi ýtir á punktana þrjá við nafn viðkomandi.
Eigandi velur „Gera að: …“, t.d. ef samstarfsmaður átti að vera áhorfandi.
Eigandi velur „Fjarlægja aðgang“. Bújörðin hverfur úr appi viðkomandi. Hægt er að bjóða honum aftur með nýjum kóða.
Hver sem er getur ýtt á útgöngutáknið á eigin línu í listanum og valið „Fara af bújörðinni“.
Gott að vita
Þegar fleiri skrá á sama bú
Þegar einhver sækir úr Fjárvís uppfærist búið hjá öllum. Samstarfsmaður þarf ekki eigin Fjárvís-aðgang til þess.
Það sem fer í Fjárvís fer undir nafni þess sem sendir. Hver skráning sýnir líka hver setti hana inn.
Skráningu sem er komin í Fjárvís getur enginn breytt eða eytt í LAMB. Það sem er ekki farið má enn laga.
Ef eitthvað stoppar þig
Skilaboð sem geta birst
Kóðinn hefur verið notaður, er eldri en 7 daga eða var afturkallaður. Biddu eigandann um nýjan.
Bara eigendur geta hleypt öðrum inn. Ertu samstarfsmaður eða áhorfandi? Biddu eiganda búsins að búa til kóðann.
Kóðinn verður til á netinu, svo síminn þarf að vera í sambandi. Athugaðu netsambandið og reyndu aftur.